Heilsa og öryggi starfsmanna og samstarfsaðila er í fyrirrúmi hjá Línuborun þar sem öllum er tryggt öruggt
og heilsusamlegt vinnuumhverfi sem stuðlar að slysalausum vinnustað.
Línuborun skuldbindur sig til þess að:
- Uppfylla kröfur viðskiptavina, laga, reglugerða og staðla.
- Greina áhættu, vinna stöðugt að úrbótum og setja markmið þar að lútandi.
- Leggja starfsmönnum til aðstöðu, tæki og búnað sem uppfyllir öryggiskröfur.
- Leggja starfsmönnum og gestum til viðeigandi persónuhlífar.
- Leggja til viðeigandi neyðaráætlanir og skyndihjálparþjálfun.
- Veita nauðsynlega þjálfun og fræðslu í öryggismálum.
- Hvetja til þátttöku og samráðs til að viðhalda öruggum vinnuaðstæðum.
- Rannsaka atvik og hættu með úrbætur að markmiði.
- Fylgjast með virkni öryggisstjórnunarkerfisins.
- Fylgjast með áhrifum starfseminnar á heilsu með heilsufarsskoðunum.
Öryggi, heilsa og öruggt vinnuumhverfi er á ábyrgð stjórnenda, allra starfsmanna og þjónustuaðila og greinist þannig:
STJÓRNENDUR
- Tryggja að þessari stefnu og öryggisstjórnunarkerfinu sé viðhaldið.
- Tryggja að virkt samráð sé um öryggismál milli starfsmanna og stjórnenda.
- Leitast við að auka öryggi í samstarfi við yfirstjórn.
VERKSTJÓRNENDUR
- Tryggja að öryggisstjórnunarkerfinu sé fylgt.
- Tryggja að starfsfólk sé hæft til að sinna verkefnum sem því er úthlutað.
- Tilkynna öll atvik sem upp koma til stjórnenda.
STARFSMENN
- Þekkja og fylgja öryggisreglum.
- Nota viðeigandi persónuhlífar.
- Tryggja heilsu og öryggi þeirra sjálfra og annarra á vinnustað.
- Tilkynna öll atvik sem upp koma til yfirmanns.
ÞJÓNUSTUAÐILAR
- Fylgja öryggisreglum Línuborunar fyrir undirverktaka.
- Tilkynna verk sem geta haft áhrif á heilsu og öryggi þeirra sjálfra og annarra.
- Leitast við að auka öryggi í samstarfi við starfsmenn og stjórnendur.
Framkvæmdastjórn Línuborunar hefur samþykkt þessa stefnu og styður við framkvæmd hennar. Stefnan er endurskoðuð árlega á rýnifundi stjórnenda.